Fara í efni

Útboð - Hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit 2020-2024

Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í hreinsun rotþróa fyrir heimili, frístundarhús og stofnanir í sveitarfélaginu.

Rotþrær skal hreinsa 3ja hvert ár. Fjöldi rotþróa í sveitarfélagi er um 680 stk.  Verktími er 5 ár, frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2024.

Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, og nafn, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.

Tilboð verða opnuð í Stjórnsýsluhúsi (Ráðhúsi) Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes, fimmtudaginn 9. janúar 2020 kl. 11.00.

Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Bogi Kristinsson Magnusen