Fara í efni

Holtavörðuheiðarlína 1

Landsnet hefur  boðað til funda með landeigendum vegna fyrirhugaðrar lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1.
Fundirnir eru tveir annars vegar þann 1. júní að Hótel Hamri í Borgarnesi og seinni fundurinn að Hótel Glym í Hvalfirði þann 3. júní. Fundirnir hefjast kl: 20.00 og áætlað að ljúki um 22.00.

Sama efni verður á báðum fundunum engin svæðisskipting einungis verið að gefa möguleika á tveimur dagsetningum og vali á fundarstað. Meginþema fundanna verður vinnustofa þar sem unnið verður með valkostagreiningu línuleiðar og einnig verða framsöguerindi sem tengjast því efni.

Landsnet vonast til að  sjá sem flesta landeigendur á þessum fundum  þar sem verið er  að vinna með valkostagreiningu á línuleiðinni og mikilvægt fá inn álit sem flestra landeigenda og hagaðila á þessu stigi málsins. Auk okkar frá Landsneti verður fólk frá ráðgjafstofunni Gembu og Verkfræðistofunni Verkís á fundunum

 Vinsamlega skráið ykkur á fundina með því að senda nafn viðkomandi á elins@landsnet.is og hvort það verða fleiri en einn fulltrúi landeigenda sem mæta á fundinn/fundina.

 Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.