Fara í efni

Holtaflöt í landi Kirkjubóls og Innri-Hólms

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. ágúst 2025 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir Holtaflöt í landi Kirkjubóls L133697 og Innri-Hólms L133691, til samræmis við 1. mgr. 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni er nýrri lóð bætt við, byggingarreit og skilmálum fyrir þjónustuhúsi við Hvalfjarðargöng.

Kynningartími tillögunnar er frá 4. september - 16. október 2025 í Skipulagsgátt

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeild