Hólabrú - Deiliskipulag
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 28. janúar 2026 að auglýsa eftirfarandi Nýtt deiliskipulag fyrir efnistöku- og athafnasvæðið Hólabrú í landi Innra-Hólms og Kirkjubóls. Í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, er svæðið merkt E13 Innri-Hólmur (Hólabrú) og nær einnig yfir athafnasvæði AT9 fyrir verkstæði, starfsmannaaðstöðu og aðstöðu vegna námuvinnslu.
Kynningartími tillögunnar er 6. febrúar – 20. mars 2026, hér í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild