Heitavatnslaust við Melahverfi
12. október 2026
Tilkynning frá Veitum:
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við Lækjarmel,Bugðumel,Innrimel, Hagamel, Brekkumel, Lyngmel, Háamel, Lambaga og Stóra-Lambhaga þriðjudaginn 13. október kl. 14:00 - 17:00.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.