Fara í efni

Heilbrigðisstefna til ársins 2030

Opinn kynningarfundur í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.15. ágúst kl. 17 – 19.

 

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

 

Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, en fundurinn á Vesturlandi er fjórði í röðinni.

Drög að dagskrá
• Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
• Jóhann Fjóla Jóhannsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands –Sýn forstjóra
• María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands – Áhrif heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ.
• Pallborðsumræður
Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðum:
- Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi
- Elsa B. Friðfinssdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu
• Heilbrigðisráðherra – samantekt
• Fundarslit

Fundarstjóri: Björn Bjarki Þorsteinsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis