Heiðarborg - íþróttahús
Framkvæmdir við nýtt íþróttahús við Heiðarborg ganga vel og stefnt er að því að verkinu ljúki í ágúst 2026. Þá verður nýr íþróttasalur tekinn í notkun ásamt móttöku, stoðrýmum, búningsklefum og nýjum þreksal. Ný pottaaðstaða verður síðan opnuð nokkrum vikum síðar. Nýverið fengu ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar, hluti starfsfólks sveitarfélagsins og sveitarstjórnar að skoða framkvæmdasvæðið.
Samhliða byggingarframkvæmdum stendur yfir skipulagning á rekstri Heiðarborgar. Markmiðið er að Heiðarborg verði lifandi samfélagsmiðstöð sem hýsir skóla-, íþrótta-, frístunda-, félags- og samkomustarf fyrir alla aldurshópa. Með því er leitast við að efla íþrótta- og frístundastarf í sveitarfélaginu og stuðla að bættri lýðheilsu íbúa Hvalfjarðarsveitar, m.a. með aukinni heilsueflingu og styrkingu forvarna. Til framtíðar mun Heiðarborg hýsa fjölbreytta og kraftmikla starfsemi sem nýtist bæði íbúum og gestum sveitarfélagsins. Lögð verður áhersla á að skapa aðstöðu sem hvetur fólk til að taka virkan þátt í starfseminni, þannig að hún verði lifandi og blómlegur samkomustaður frá fyrsta degi.
Framkvæmdamyndir má sjá hér