Fara í efni

ÚTBOÐ - Heiðarborg - Íþróttahús

Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í byggingu nýs íþróttahúss við Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit.

Verkið er fyrsti áfangi af þremur í byggingu nýs Íþróttahúss. Meðal annars er um að ræða jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki, lagnavinnu, frágang utanhúss og grófjöfnun lóðar.

Helstu magntölur:
Gröftur 4.400 m3
Fylling 5.000 m3
Steypa 1.200 m3
Bendistál 70.000 kg

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef Mannvits á vefslóðinni: https://mannvit.ajoursystem.net/ frá kl. 12:00 þann 19. febrúar 2024

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Mannvits eigi síðar en kl. 10:00 þann 3. apríl 2024. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað á útboðsvefinn. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Verkefnastjóri framkvæmda og eigna