Fara í efni

Heiðarborg íþróttahús

Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í heildarhönnun verkfræðinga- og landslagshönnunar vegna viðbyggingar við íþróttahúss Heiðarborgar ásamt tengingum við núverandi byggingu. Tilboð skal fela í sér fullnaðarhönnun verkfræðinga á öllum verkþáttum sem nauðsynlegir eru til að fullgera bygginguna tilbúna til notkunar auk landslagshönnunar.

Verkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu, ásamt þeim gögnum sem þar er vísað til.

Gögn verða send bjóðendum. Senda skal póst á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is og tilgreina netpóst sem gögnin verða send á.

Tilboði skal skilað í síðasta lagi kl. 16:00, fimmtudaginn 31. mars 2022.