Hallgrímshátíð 2026 í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Hallgrímshátíð var haldin í Hallgrímskirkju í Saurbæ helgina 24.–25. október 2026. Dagskráin hófst með tónleikum á laugardag og á sunnudag var boðið upp á hátíðarmessu, kirkjukaffi og Passíusálmadagskrá. Hátíðin hlaut styrk úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar árið 2026.
Tónleikarnir á laugardag báru yfirskriftina Heilög María og Hallgrímur. Þar var flutt tónlist miðalda við texta um Maríu Guðsmóður ásamt textum eftir Hallgrím Pétursson.
Flytjendur voru karlasönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústs Inga Ágústssonar, Jóhanna Valsdóttir mezzósópran og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel Þá léku Ingibjörg Guðlaugsdóttir og Jens Bauer á barokkbásúnur.
Aðaldagur hátíðarinnar var á sunnudag. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir biskup predikaði við hátíðarmessu í Hallgrímskirkju. Allir prestar prestakallsins þjónuðu við messuna ásamt Kristjáni Val. Kirkjukórinn söng ásamt Benedikt og Ástu Marý og organisti var Jóhanna Óskarsdóttir.
Á hátíðardagskránni flutti Kristján Valur erindi um útgáfu Passíusálmanna. Ásta Marý og Guðmundur Sigurðsson fluttu jafnframt útsetningar og orgelforspil eftir Smára Ólason, sem var helsti tónlistarfræðingur okkar í Passíusálmalögum. Smári hefði orðið áttræður á árinu en hann lést árið 2023. Ingibjörg Styrgerður, ekkja Smára, var meðal gesta og var henni færð ævisaga Hallgríms að gjöf sem þakklætisvottur. Björgvin orgelsmiður kom einnig og hlustaði á orgelið í kirkjunni, sem hann endurgerði.
Veður var gott og fjöldi gesta naut dagskrárinnar og glæsilegra kaffiveitinga í Vatnaskógi í boði sóknarnefndar.