Fara í efni

Hafrannsóknir Rastar sjávarrannsóknaseturs - Opinn umræðufundur og samtal

Röst sjávarrannsóknasetur býður til opinna umræðufunda um hafrannsóknir og rannsóknarhugmyndir í Hvalfirði.

Mánudaginn 28. september í Félagsgarði (Dreng), Kjósarhreppi kl. 19:30

Miðvikudaginn 30. september í Miðgarði, Hvalfjarðarsveit kl. 19:30

Mikil losun koldíoxíðs í andrúmsloftið af mannavöldum hefur áhrif á loftslag, súrnun sjávar og veltihringrás Atlantshafsins (AMOC). Alþjóðastofnanir kalla eftir því að draga úr losun og binda það sem losað hefur verið. Margar aðferðir til að binda koldíoxíð í hafi er verið að rannsaka og aukin sjávarloftskipti, eða aukin basavirkni sjávar (e. Ocean Alkalinity Enhancement, OAE) er ein þeirra. Framtíðarákvarðanir alþjóðlega vísindasamfélagsins og löggjafa um mögulega beitingu aðferðarinnar sem kolefnisbindingu þurfa að vera byggðar á vísindalegri þekkingu, sem kallar á rannsóknir.

Vettvangsrannsókn á þessu samspili hafs og loftslags er nú í undirbúningi í þeim tilgangi að meta á smáum skala hvernig flutningur koldíoxíðs úr andrúmslofti í sjó verður þegar útþynntri basískri vatnslausn er blandað við yfirborðssjó við stýrðar aðstæður. Aðferðin er talin hafa jákvæð áhrif á loftslag og gefa mótvægi við súrnun sjávar.

Hér má lesa nánar um rannsóknina.

Birkir Bárðarson, forstöðumaður Rastar, kynnir fyrri og fyrirhugaðar rannsóknir og rannsóknahugmyndir setursins og fer m.a. yfir það hvers vegna rannsóknin er gerð, hvað verði mælt og vaktað og hvað hafi breyst í rannsóknaráætluninni eftir athugasemdir frá nærsamfélagi.

Við viljum framkvæma rannsóknina í góðu samtali við nærsamfélag og eiga um hana opið samtal - öll eru velkomin.

Húsið opnar kl 19:00, fundirnir hefjast kl 19:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Við hlökkum til að sjá sem flest.