Hafnarland Ölver - Vinnslutillaga
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 28. janúar 2026 að auglýsa vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir lóðina Hafnarland Ölver L238859.
Breytingin felur í sér afmörkun nýs landnotkunarreits VÞ21 fyrir verslun og þjónustu í landi Hafnar. Innan reits VÞ21 er fyrirhuguð veitinga- og gistiþjónusta fyrir allt að 30 manns, auk fastrar búsetu. Í gildandi aðalskipulagi er landið skilgreint sem landbúnaðarland í flokki L2, annað landbúnaðarland. Skipulagssvæðið er 5 ha að stærð og hámarks byggingarmagn er 600 m2.
Kynningartími tillögunnar er 6. – 15. febrúar 2026, hér í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild