Gott samtal við ferðaþjónustuaðila í Hvalfjarðarsveit
Góður og gagnlegur fundur með aðilum í ferðaþjónustu í Hvalfjarðarsveit var haldinn mánudaginn 7. september sl. Það var góð mæting á fundinn og skapaðist gott og opið samtal um stöðu ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit, helstu áskoranir og ekki síður þau fjölmörgu tækifæri sem felast í frekari uppbyggingu greinarinnar í sveitarfélaginu.
Fulltrúar frá Markaðsstofu Vesturlands og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) tóku þátt í fundinum og lögðu mikilvægt innlegg til umræðunnar út frá reynslu sinni og þekkingu á ferðaþjónustu og byggðaþróun á Vesturlandi og ekki síður að hægt er að leita til þeirra hvað varðar ráðgjöf og ýmsa aðstoð.
Á fundinum var komið víða við. Meðal þess sem rætt var um var gjaldtaka hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, og áhrif hennar á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar. Einnig var rætt um samspil ferðaþjónustu og þeirrar öflugu atvinnu- og iðnaðarstarfsemi sem er í Hvalfjarðarsveit og hvernig þessir mikilvægu þættir atvinnulífsins geta þróast áfram samhliða.
Sérstök áhersla var lögð á að ræða hvar og með hvaða hætti Hvalfjarðarsveit getur stigið inn og stutt við þróun ferðaþjónustunnar. Þar var meðal annars horft til upplýsingamiðlunar, sýnileika, innviða og þess hvernig sveitarfélagið og ferðaþjónustuaðilar geta betur stillt saman strengi sína.
Sterkur samhljómur var um mikilvægi þess að efla samstarf, samvinnu og reglulegt samtal milli sveitarfélagsins og þeirra fjölmörgu aðila sem starfa í ferðaþjónustu í Hvalfjarðarsveit. Slíkt samtal er mikilvægur grunnur að því að nýta þau tækifæri sem svæðið hefur upp á að bjóða og vinna sameiginlega að áframhaldandi uppbyggingu.
Hvalfjarðarsveit þakkar öllum þeim sem mættu fyrir góða þátttöku, málefnalegar umræður og fjölmargar góðar ábendingar. Jafnframt eru Markaðsstofu Vesturlands og SSV færðar þakkir fyrir þátttökuna og þeirra framlag.
Fundurinn er vonandi upphafið að enn öflugra og reglulegra samtali. Ferðaþjónustan er mikilvægur hluti af fjölbreyttu atvinnulífi Hvalfjarðarsveitar og sveitarfélagið vill leggja sitt af mörkum til að skapa henni góð skilyrði til áframhaldandi þróunar og vaxtar.
Stefnt er að næsta samtali í lok október/byrjun nóvember, staður og nákvæm stund verður kynnt þegar nær dregur.