Fara í efni

Gott að eldast – Ný nálgun á þjónustu við eldra fólk

Frá vinstri: Anna Guðrún Alexandersdóttir og Freyja Þöll Smáradóttir frá Velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar, Heiður Haraldsdóttir, iðjuþjálfi hjá SSV, Ragnheiður Helgadóttir og Rakel Valsdóttir frá heimahjúkrun HVE og Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimilinu Höfða.
Frá vinstri: Anna Guðrún Alexandersdóttir og Freyja Þöll Smáradóttir frá Velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar, Heiður Haraldsdóttir, iðjuþjálfi hjá SSV, Ragnheiður Helgadóttir og Rakel Valsdóttir frá heimahjúkrun HVE og Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimilinu Höfða.

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum. Þjóðin er að eldast og eldra fólk er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Í því felst ekki aðeins áskorun heldur einnig mikil tækifæri. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þessar breytingar.

Undir heitinu Gott að eldast hefst nú ný vegferð þar sem stjórnvöld taka utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti. Meginhugsunin er skýr: eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Fléttum saman þjónustuna

Aðgerðir verkefnisins beinast að því að finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk. Sérstök áhersla er lögð á að samhæfa þjónustu ríkis og sveitarfélaga, efla heilbrigða öldrun með heilsueflingu, tryggja sveigjanlega þjónustu og bæta aðgang að ráðgjöf og upplýsingum fyrir eldra fólk. Markmiðið er að skapa þjónustu sem styður við virkt og heilsuhraust eldra fólk og gerir því kleift að taka þátt í samfélaginu sem allra lengst.

Hvalfjarðarsveit tekur fyrstu skrefin

Sem liður í verkefninu hefur Hvalfjarðarsveit stigið mikilvægt skref með stofnun svokallaðs Móma-teymis (móttöku- og matsteymis). Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun.

Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar, Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), hjúkrunarheimilinu Höfða ásamt iðjuþjálfa frá SSV . Með þessu er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.

Jóhanna F. Jóhannesdóttir, forstjóri HVE:
"Samvinna þjónustuaðila í Hvalfjarðasveit er lykillinn að farsælli þróun þjónustu fyrir eldra fólk. Með því að samþætta þjónustuna og byggja hana á samræmdu mati á þjónustuþörf getum við tryggt að einstaklingar fái heildstæða og skilvirka þjónustu.“

Deildarstjóri velferðar- og fræðsludeildar í Hvalfjarðarsveit:
"Stofnun Móma-teymisins er mikilvægt skref í átt að samþættari og markvissari þjónustu við eldra fólk í Hvalfjarðarsveit. Með því að leiða saman ólíka fagaðila fæst betri yfirsýn yfir þarfir íbúa og auðveldara verður að tryggja rétta þjónustu á réttum tíma."