Fara í efni

Gott að eldast á Vesturlandi

Miðvikudaginn 17. apríl sl. komu fulltrúar sveitarfélaga, hjúkrunarheimila og HVE saman til fundar vegna verkefnisins Gott að eldast á Vesturlandi. Ráðgjafar verkefnisins hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu fóru yfir stöðu verkefnisins á landsvísu ásamt því að fulltrúar verkefnisins á Vesturlandi fjölluðu um verklag og fleira vegna útfærslu þess á Vesturlandi. Fundurinn var haldinn á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili og sögðu hjúkrunarforstjóri og framkvæmdastjóri frá starfsemi heimilisins og að lokum fengu fundargestir leiðsögn um húsið og þær framkvæmdir sem eru á staðnum.

Sveitarfélögin á Vesturlandi ásamt Heilbrigðisstofnun Vesturlands voru meðal annars valin til að taka þátt í þróunarverkefninu Gott að eldast þar sem samtals sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka þátt á landsvísu.
Sveitarfélögin og heilbrigðisstofnanir vinna að því að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum.

Á Vesturlandi hefur verkefnastjórn starfað frá því í janúar 2024 ásamt tveimur verkefnastjórum, einum frá sveitarfélögum og öðrum frá heilbrigðisstofnuninni.

Samhliða hefur verið ráðinn tengiráðgjafi, Laufey Jónsdóttir, sem hefur það hlutverk að vinna með hverju sveitarfélagi fyrir sig að efla félagslega virkni eldra fólks. Mun Laufey bjóða eldra fólk til fundar í hverju sveitarfélagi til að ræða væntingar þeirra og vilja til verkefnisins.

Á heimasíðu verkefnisins Gott að eldast, Stjórnarráðið | Gott að eldast (stjornarradid.is), segir m.a.:

Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þetta. Sú vegferð er nú hafin undir heitinu Gott að eldast. Stjórnvöld taka þar utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti.

Grunnhugsunin er sú að eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Aðgerðaáætlunin byggist á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og viljayfirlýsingu félags- og vinnumarkaðsráðherra, heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. Þverfaglegt samstarf félags- og heilbrigðisþjónustu er grundvallaratriði til að ná fram samlegðaráhrifum fagþekkingar á hvoru sviði fyrir sig og tryggja þannig betri þjónustu við stækkandi þjóðfélagshóp, m.a. með samþættingu á þjónustu, forvörnum, heilsueflingu og aukinni virkni.

Hægt er að lesa aðgerðaráætlunina í heild sinni inna á slóðinni www.gottadeldast.is

Aðgengi að miðlægum upplýisingum fyrir eldra fólk er eitt af þeim verkefnum sem er langt komin. Með því að fara inn á síðuna https://island.is/flokkur/fjolskylda-og-velferd#efri-arin er hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um réttindi, þjónustu og fræðsluefni til eldra fólks sem við hvetjum eldra fólk eindregið til að kynna sér.