Göngustígur meðfram Eiðisvatni
Áformað er að ljúka gerð göngustígs meðfram Eiðisvatni á árinu 2026.
Verkefnið hefur verið unnið í áföngum frá Melahverfi og meðfram Eiðisvatni í átt að Grundartanga, áætlað er að ljúka síðasta áfanganum og þeim lengsta síðar á árinu.
Hönnunargögn eiga að liggja fyrir í maí og áformað að framkvæmdir fari af stað í kjölfar verðkönnunar í maí nk.
Efla verkfræðistofa sér um verkfræðihönnun og gerð verðkönnunargagna.
Verklok eru áætluð haustið 2026.
Sá hluti verksins sem snýr að sveitarfélaginu er í landi Fellsenda en Faxaflóahafnir kosta þann hluta verksins sem er í landi Klafastaða, að skógræktarsvæði við Grundartanga, sem er stærri hluti verksins.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna hjá Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar annast umsjón og eftirlit með framkvæmd verksins.