Fara í efni

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2022

A. Leitarsvæði Núparéttar
Núparétt: Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar.
Leitardagur er á laugardegi fyrir rétt.

Fyrri leitir:10.09.2022.
Fyrri rétt: 11.09.2022 kl 13:00.
Seinni leitir: 24.09.2022.
Seinni réttir: 24.09.2022 þegar smölun lýkur.

Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson.
Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson.
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.


B. Leitarsvæði Reynisréttar.
Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað. Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru.

Fyrri leitir: 17.09.2022.
Fyrri rétt: 17.09.2022 þegar smölun lýkur nema leitarstjórar og réttarstjóri ákveði annað.

Leitarstjórar eru Bjarki Borgdal Magnússon og Sigurgeir Guðni Ólafsson.
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Haraldur Benediktsson


C. Leitarsvæði Svarthamarsréttar
Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar. Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir.

Fyrri leitir: 16. og 17.09.2022.
Fyrri rétt: 18.09.2022 kl 10:00.
Seinni leitir: 01. og 02.10.2022.
Seinni réttir: 02.10.2022 þegar smölun lýkur.

Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir.
Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Jón Ottesen.

Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson