Fara í efni

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2021

Við viljum benda á útgefnar leiðbeiningar um göngur og réttir vegna COVID-19:

Vegna fjöldatakmarkana er mælst til þess að gestir komi ekki til réttarstarfa. Fjöldatakmörk miðast við 200 manns.  Börn fædd 2016 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkun.

Leiðbeiningar í heild sinni ásamt gátlistum má finna á heimasíðu Landssamtaka sauðfjárbænda eða með því að smella HÉR.

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður ekki boðið upp á kaffiveitingar í réttum eins og tíðkast hefur.

Leitarsvæði Núparéttar.
 Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar.
Leitardagur er á laugardegi fyrir réttir. 

Fyrri leitir: 11.09.21. 
Fyrri rétt: 12.09.21 kl. 13:00.
Seinni leitir: 25.09.21.  
Seinni réttir: 25.09.21 þegar smölun lýkur.

Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon. 
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. 
Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson. 
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.

 Leitarsvæði Reynisréttar.
Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað.
Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru. 

Fyrri leitir: 18.09.21.
Fyrri rétt: 18.09.21 þegar smölun lýkur.
Seinni leitir: 25.09.21.
Seinni réttir: 25.09.21 þegar smölun lýkur.

Leitarstjórar eru Bjarki Borgdal Magnússon og Sigurgeir Guðni Ólafsson. 
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir. 
Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Haraldur Benediktsson.

 Leitarsvæði Svarthamarsréttar. 
Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar.
Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir. 

Fyrri leitir: 17. og 18.09.21.
Fyrri rétt: 19.09.21 kl. 10:00
Seinni leitir: 01. og 02.10.21.
Seinni réttir: 03.10.21 þegar smölun lýkur.

Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson. 
Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir. 
Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Guðmundur Brynjólfur Ottesen. 

Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.