Fara í efni

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2020

Við viljum byrja á að árétta atriði í nýútgefnum leiðbeiningum um göngur og réttir vegna COVID-19:

  • Vegna fjöldatakmarkana er mælst til þess að gestir komi ekki til réttarstarfa. Því verður fylgt strangt eftir að við réttarstörf séu ekki fleiri en 100 manns. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkun.
  • Hliðvarsla verður við aðkeyrslu að réttum og þangað inn verður aðeins hleypt þeim sem þar eiga erindi.
  • Allir sem taka þátt í göngum og réttum skulu hlaða niður smitrakningarappi almannavarna.
  • Vegna smitvarna er mælst til þess að áfengi verði ekki haft um hönd.

Leiðbeiningar í heild sinni ásamt gátlistum má finna á heimasíðu Landssamtaka sauðfjárbænda eða með því að smella HÉR.

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður ekki boðið upp á kaffiveitingar í réttum eins og tíðkast hefur.
Salernisaðstaða verður einungis í boði í Svarthamarsrétt.

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2020

 Leitarsvæði Núparéttar. 
Núparétt: Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar.
Leitardagur er á laugardegi fyrir réttir. 

Fyrri leitir: 12.09.20. 
 Fyrri rétt: 13.09.20 kl. 13:00.
Seinni leitir: 25.09.20.  
Seinni réttir: 26.09.20 þegar smölun lýkur.

Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon. 
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. 
Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson. 
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.

 Leitarsvæði Reynisréttar.
Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað. Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru. 

Fyrri leitir: 19.09.20.
Fyrri rétt: 19.09.20 þegar smölun lýkur.
Seinni leitir: 26.09.20.
 Seinni réttir: 26.09.20 þegar smölun lýkur.

Leitarstjórar eru Bjarki Borgdal Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson. 
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir. 
Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Haraldur Benediktsson

 Leitarsvæði Svarthamarsréttar. 
Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar. Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir. 

Fyrri leitir: 18. og 19.09.20.
Fyrri rétt: 20.09.20 kl. 10:00
Seinni leitir: 02. og 03.10.20.
Seinni réttir: 04.10.20 þegar smölun lýkur.

Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson. 
Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir. 
Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Guðmundur Brynjólfur Ottesen. 

Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.