Góður og gagnlegur fundur með Vegagerðinni um samgöngumál í Hvalfjarðarsveit
Oddviti sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar og sveitarstjóri áttu sl. föstudag góðan og gagnlegan fund með forstjóra Vegagerðarinnar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Vestursvæði og sérfræðingum stofnunarinnar á sviði umferðaröryggis og vegamála.
Fundurinn var haldinn að ósk Hvalfjarðarsveitar í framhaldi af samþykkt sveitarstjórnar í júlí síðastliðnum þar sem sveitarstjóra var falið að óska eftir formlegum viðræðum við Vegagerðina um mikilvæg samgöngumál í sveitarfélaginu.
Í samþykkt sveitarstjórnar segir meðal annars:
„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni um þau samgöngumál sem rakin eru í minnisblaði þessu, með það að markmiði að hefja formlegt samráð um úrbætur á gatnamótum við þjóðveg 1 og Innnesveg, þátttöku sveitarfélagsins í undirbúningi Hvalfjarðarganga II og gerð sameiginlegrar áætlunar um úrbætur á tengivegum og heimreiðum í sveitarfélaginu.“
Á fundinum kom fram að Vegagerðin er komin vel af stað með athugun á mögulegri framtíðarlegu og skipulagi þjóðvegar 1 um Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða afar mikilvægt verkefni fyrir sveitarfélagið enda þjóðvegur 1 ein helsta samgönguæð landsins og liggur um stóran hluta Hvalfjarðarsveitar.
Sérstök áhersla var lögð á umferðaröryggi og mögulegar úrbætur á vegtengingum við þjóðveg 1. Þar er meðal annars til skoðunar hvernig bæta megi fyrirkomulag tenginga Akrafjallsvegar, Melahverfis, Hvalfjarðarvegar og Leirársveitarvegar inn á þjóðveg 1. Einn þeirra kosta sem horft er til felur í sér að tengja umræddar leiðir við þjóðveg 1 um ein sameiginleg gatnamót. Slík framkvæmd gæti orðið einn af fyrstu áföngum framtíðarúrbóta á þjóðveginum um Hvalfjarðarsveit og stuðlað að auknu umferðaröryggi.
Þá er einnig horft til mögulegra aðgerða á Hafnarmelum, meðal annars með því að bæta við svokölluðum framúrakstursgreinum á völdum köflum. Markmiðið með slíkum úrbótum væri að skapa öruggari tækifæri til framúraksturs og draga þannig úr hættulegum framúrakstri á leiðinni.
Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar lögðu jafnframt áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið verði virkur þátttakandi í þeirri vinnu sem fram undan er við framtíðarskipulag þjóðvegar 1 og undirbúning Hvalfjarðarganga II, enda geta ákvarðanir um legu og útfærslu þessara samgöngumannvirkja haft veruleg áhrif á byggðaþróun, atvinnulíf og skipulag Hvalfjarðarsveitar til framtíðar.
Fundurinn markar mikilvægt skref í formlegra og reglulegra samtali Hvalfjarðarsveitar og Vegagerðarinnar um samgöngumál í sveitarfélaginu.