Fara í efni

Getur þú boðið fram íbúðarhúsnæði til leigu fyrir flóttafólk?

Hvalfjarðarsveit er að kanna mögulegt framboð á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu fyrir flóttafólk í langtímaleigu, hið minnsta eitt ár.

Ef þú ert með íbúðarhús, íbúð eða annað viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu fyrir fólk á flótta máttu hafa samband við félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar. Ekki er verið að leita af sumarhúsum heldur eignum sem eru með lögheimilisrétt.

Upplýsingar berist felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma 433-8500 eða á netfangið felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is

Hvalfjarðarsveit tekur á móti upplýsingum til 21. apríl 2022.