Fara í efni

Gamlir kjörkassar afhentir Byggðasafninu í Görðum

Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, afhenti í dag Jóni Allanssyni, forstöðumanni Byggðasafnsins í Görðum og Guðmundi Sigurðssyni, starfsmanni safnsins, gamla kjörkassa sem notaðir voru við kosningar í hreppunum fjórum sem nú mynda Hvalfjarðarsveit.

Hrepparnir voru Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur, sem sameinuðust í Hvalfjarðarsveit 1. júní 2006.

Mikil saga liggur að baki kjörkössunum og er það ánægjulegt að þeir fái nú varðveislu á góðum stað, þar sem þeir verða hluti af sameiginlegum menningararfi svæðisins.

Byggðasafnið í Görðum er í sameiginlegri eigu Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar. Eignarhlutur Hvalfjarðarsveitar er 10% og Akraneskaupstaðar 90%.