Fara í efni

Galtarlækur L133627 - Aðalskipulagsbreyting

Samþykkt var í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 28. janúar 2026 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir jörðina Galtarlæk, L133627, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að athafnasvæði AF15 á Galtarlæk stækkar og umfang starfseminnar eykst. Nýtt hafnarsvæði verður skilgreint neðan athafnasvæðisins. Hin nýju athafna- og hafnarsvæði verða vestur frá núverandi atvinnusvæði og hafnarmannvirkjum á Grundartanga. Áætlað er að ný höfn muni þjónusta flutningaskip og stór skemmtiferðaskip, með viðlegukanti sem nýtist til fjölbreyttrar hafnsækinnar starfsemi. Athafnasvæðið mun hýsa hreinlega og vistvæna starfsemi, svo sem vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og þjónustustarfsemi tengda hafnarrekstri. Sérstök áhersla verður lögð á umhverfisvænar lausnir varðandi neysluvatn, fráveitu og raftengingar fyrir skip og bifreiðar.

Kynningartími tillögunnar er frá 15. apríl – 27. maí 2026.

Tillagan er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og til sýnis í Skipulagsgátt hér.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeild