Fara í efni

Fundur með þingmönnum

Fundarmenn að loknum fundi fyrir utan Hótel Hamar
Fundarmenn að loknum fundi fyrir utan Hótel Hamar

Fulltrúar sveitarfélaga á Vesturlandi áttu föstudaginn 2. október árlegan fund með alþingismönnum Norðvesturkjördæmis í tengslum við kjördæmaviku Alþingis.

Fundir sem þessi eru mikilvægur vettvangur samtals sveitarstjórnarstigsins og þingmanna kjördæmisins. Þar gefst sveitarfélögunum tækifæri til að fara sameiginlega yfir helstu hagsmunamál Vesturlands og jafnframt kynna sérstaklega þær áherslur, áskoranir og tækifæri sem efst eru á baugi í hverju sveitarfélagi.

Fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar sátu fundinn Haraldur Benediktsson oddviti, Þóra Margrét Júlíusdóttir sveitarstjórnarmaður og Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.

Á fundinum fóru fulltrúar Hvalfjarðarsveitar yfir nokkur af helstu áherslu- og hagsmunamálum sveitarfélagsins. Þar voru samgöngumál fyrirferðarmikil, enda öruggar og greiðar samgöngur grundvallaratriði fyrir íbúa, atvinnulíf og áframhaldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu og á Vesturlandi öllu.

Einnig var rætt um fyrirliggjandi frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga og mikilvægi þess að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga og íbúa þeirra sé virtur þegar kemur að framtíðarskipan sveitarstjórnarstigsins. Þá voru sjónarmið Hvalfjarðarsveitar varðandi fyrirhugað bann við hvalveiðum kynnt, sem og mikilvægi öflugs atvinnulífs og ábyrgrar nýtingar auðlinda.

Hafnamál og fyrirhuguð endurskoðun lagaumhverfis þeirra komu jafnframt til umræðu, meðal annars með tilliti til þeirrar miklu atvinnustarfsemi sem fram fer í Hvalfirði og mikilvægi þess að lagaumgjörð og innviðir styðji við sjálfbæra atvinnuuppbyggingu til framtíðar.

Fundurinn gaf gott tækifæri til að koma sjónarmiðum Hvalfjarðarsveitar á framfæri beint við þingmenn kjördæmisins og ræða þau verkefni og tækifæri sem fram undan eru. Slíkt reglubundið samtal sveitarfélaga og þingmanna er mikilvægt til að tryggja að sjónarmið og hagsmunir nærsamfélaganna eigi greiða leið inn í umræðu og ákvarðanatöku á Alþingi.

Hvalfjarðarsveit þakkar þingmönnum Norðvesturkjördæmis og fulltrúum sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir góðan og gagnlegan fund.