Fara í efni

Fundir USNL nefndar Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn samþykkti á 447. fundi sínum að fjölga fundum umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar miðað við fyrri áætlun.

Nefndin mun funda 1. og 3. fimmtudag í mánuði. Heimilt er þó að fella niður fund 1. fimmtudag í mánuði ef ástæða þykir til.

Erindi sem taka á fyrir á fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar, þurfa að berast í síðasta lagi kl. 16:00, fimmtudaginn í vikunni fyrir fund.

Erindum sem vísa þarf til staðfestingar sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, verða allajafna tekin fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar þar á eftir.