Fara í efni

Fulltrúum ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit er boðið til fundar

Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir aðilar sem bjóða upp á fjölbreytta þjónustu. Sveitarstjórn og Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur fjallað um þá jákvæðu þróun sem að framan er greint á fundum sínum fyrr í sumar og var samþykkt að sveitarfélagið hefði frumkvæði að því að kalla saman til fundar fulltrúa ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit með það að markmiði að efla samtal, samráð og mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu líkt og bókað var í fundargerðum.

Fulltrúum ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit er boðið til fundar mánudaginn 7. september kl. 17:00 til 19:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3 í Melahverfi. Fundurinn er opinn öllum en fulltrúar ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu.

Fundarstjóri verður Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri. Fulltrúar frá Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar munu kynna framkvæmdir við Glym í Botnsá sem gerðar hafa verið með stuðningi frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Á fundinn mæta einnig Hafþór Ingi Gunnarsson, verkefnastjóri miðlunar og markaðsmála hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Kristján Guðmundsson, verkefnastjóri á áfangastaða- og markaðssviði. Þeir munu kynna starfsemi Markaðsstofu Vesturlands, upplýsingakort Vesturlands (borðkortið) og fleiri verkefni sem tengjast starfseminni. Að loknum kynningum gefst tími fyrir umræður meðal fundargesta.

Við hlökkum til að sjá ykkur.