Fara í efni

Fróðleg fræðsluferð

Starfsfólk á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fór í síðustu viku í fróðlega og skemmtilega fræðsluferð þar sem starfsfólk fékk kynningu á starfsemi og uppbyggingu í Reykjavík og Ölfusi.

Fyrsti viðkomustaður var menningar- og íþróttamiðstöðin í Úlfarsárdal þar sem Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Borgarbókasafns Reykjavíkur í Úlfarsárdal og í Klébergi, tók vel á móti hópnum og kynnti starfsemina. Borgarbókasafnið deilir húsnæði með skólum, sundlaug, félagsmiðstöð og íþróttamiðstöð hverfisins. Uppbyggingin er gott dæmi um hvernig hægt er að samþætta fjölbreytta þjónustu á einum stað.

Einnig var farið í heimsókn í Ölfus þar sem Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Ölfus Cluster og Eva Lind Guðmundsdóttir, verkefnastjóri, tóku vel á móti hópnum. Þau fræddu starfsfólkið um sveitarfélagið, atvinnuuppbyggingu á svæðinu og starfsemi Ölfus Cluster, sem er þekkingarklasi fyrirtækja og opinberra aðila sem vinnur að eflingu atvinnulífs, nýsköpunar og rannsókna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Ferðin var bæði fróðleg og ánægjuleg og gaf starfsfólki tækifæri til að sækja nýjar hugmyndir og innblástur.