Fara í efni

Frístundaleiðbeinendur óskast til starfa

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða tvo frístundaleiðbeinendur til starfa í félagsmiðstöðinni 301 í Heiðarskóla.

Störfin eru unnin í tímavinnu einn dag í viku frá kl. 17:00 og felast í að undirbúa félagsstarfið í samvinnu við frístunda- og menningarfulltrúa.

Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum.

Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og hreint sakavottorð eru skilyrði. Starfið hentar öllum kynjum.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa bíl til umráða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Ása Líndal, frístunda-og menningarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is.