Fara í efni

Frístundaleiðbeinendur óskast í Félagsmiðstöðina 301

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða tvo frístundaleiðbeinendur til starfa í félagsmiðstöðina 301 frá janúar 2022. Þeir sjá um að skipuleggja og undirbúa starfið í samvinnu við frístundafulltrúa. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa bíl til umráða.

Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum. Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og hreint sakavottorð eru skilyrði. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Nánari upplýsingar veitir Ása Líndal, frístunda-og menningarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is.

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar nk.