Fara í efni

Framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi hefjast á næstunni

Búið er að undirrita verksamning við Fagurverk ehf. um framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á næstu dögum.

Landslagshönnun svæðisins miðar að því að skapa fjölbreytt leiksvæði sem nýtist breiðum hópi notenda. Áhersla er lögð á að nýta þau náttúrulegu gæði sem svæðið býr yfir, svo sem hæðarmismun, gróður, göngustíga og að leiksvæðið falli vel að umhverfi sínu. Sérstök áhersla er á sjálfbærni í rekstri, náttúrulegt yfirbragð, skjólmyndun með gróðri og að svæðið sé aðgengilegt öllum. Leikvöllurinn er staðsettur við Garðavelli í Krosslandi við sjávarsíðuna.

Á svæðinu er brekka sem nýta má undir sleða yfir vetrartímann og gefur svæðinu skemmtilega tengingu við landmótun svæðisins. Leiktækin á svæðinu eru fjölbreytt, Markmiðið er að blanda saman náttúrulegum og hefðbundum leiktækjum til að ná fram náttúrulegu yfirbragði og fjölbreyttri leikupplifun.

Með framkvæmdunum verður stigið skref í átt að bættu útivistar- og leiksvæði fyrir íbúa svæðisins.