Framkvæmdir við Heiðarborg á lokametrunum
Nokkrir starfsmenn Hvalfjarðarsveitar fóru í morgun í skoðunarferð um Heiðarborg, ný íþróttamannvirki og samfélagsmiðstöð sveitarfélagsins, þar sem framkvæmdir eru nú komnar á lokastig.
Það var ánægjulegt að sjá hversu vel verkinu miðar en verktaki er á fleygiferð við lokafrágang hússins og fjölmargir þættir að smella saman þessa dagana. Mannvirkið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum vikum og nú fer framtíðarhlutverk þess sem miðstöð íþrótta- og samfélagsstarfs í Hvalfjarðarsveit að verða æ sýnilegra.
Stefnt er að því að kennsla geti hafist í nýjum íþróttasal Heiðarborgar um næstu mánaðamót. Það verður stór og mikilvægur áfangi, ekki síst fyrir skólastarf og íþróttaiðkun barna og ungmenna í sveitarfélaginu.
Jafnframt er stefnt að formlegri vígslu Heiðarborgar í kringum mánaðamótin september/október. Nánari dagsetning og dagskrá vígslunnar verður kynnt þegar nær dregur.
Heiðarborg verður glæsileg viðbót við samfélagið í Hvalfjarðarsveit. Með tilkomu mannvirkisins skapast stórbætt aðstaða til íþróttaiðkunar, kennslu og fjölbreytts samfélagsstarfs og verður húsið vonandi mikilvægur samkomustaður fyrir íbúa sveitarfélagsins til framtíðar.
Eftir skoðunarferð morgunsins er ljóst að það styttist hratt í að Heiðarborg fyllist af lífi og starfsemi – og verður sannarlega ánægjulegt að sjá þetta metnaðarfulla verkefni verða að veruleika.