Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027
29. september 2026
Útsýnisstígur og myndatökustaður undir Eyjafjöllum er meðal framkvæmda sem sjóðurinn hefur styrkt og hefur einnig hlotið umhverfisverðlaun Ferðamálastofu.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2027.
Umsóknarfrestur er til kl. 13 þann 27. október 2026 og umsóknir sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina.
Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
- Öryggi ferðamanna.
- Náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.