Fara í efni

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Opnað var fyrir umsóknir 27. september og er umsóknarfrestur til kl. 13 þriðjudaginn 26. október. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins ásamt frekari upplýsingum um skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is

Umsóknartímabil er frá og með 27. september til kl. 13:00 þriðjudaginn 26. október. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

Nánar á vef Ferðamálastofu