Frá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar vegna verndartolla ESB á kísiljárn og tengdar vörur frá Íslandi.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með að Ísland og Noregur fái ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart kísilmálmi samkvæmt tillögu sem framkvæmdastjórn ESB tilkynnti í gær. Ákvörðunin er í ósamræmi við EES-samninginn.
Líkt og kom fram í fyrri yfirlýsingu sveitarstjórnar vegna málsins þá verður það mjög alvarlegt högg fyrir iðnaðarsvæðið á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit þar sem nú er unnið að gerð græns hringrásariðngarðs með framsæknum nýsköpunarverkefnum í betri nýtingu orku- og efnisstrauma innan svæðisins. Að auki yrði sett í uppnám öll sú mikilvæga uppbygging og fjárfesting nýrra fyrirtækja sem unnið hefur verið að í langan tíma á svæðinu.
Hjá Elkem á Grundartanga starfa tæplega 200 manns, auk fjölda óbeinna starfa sem reksturinn skapar. Verði þessi áform að veruleika munu þau ekki einungis hafa alvarleg áhrif á atvinnu og afkomu fjölmargra fjölskyldna í Hvalfjarðarsveit heldur einnig nærliggjandi svæða sem og þjóðarbúsins alls.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skorar á íslensk stjórnvöld að leggja áfram allt kapp í að afstýra fyrirhuguðum áformum.