Fara í efni

Fótboltakynning frá KSÍ

Hvalfjarðarsveit er í samstarfi við knattspyrnufélag ÍA (KFÍA) og KSÍ með verkefnið “Komdu í fótbolta”.
Fimmtudaginn 24. júní kom  Siguróli Kristjánsson frá KSÍ ásamt tveimur leikmönnum úr meistarflokki ÍA karla og voru með knattþrautir og æfingar fyrir alla sem hafa áhuga á fótbolta. 

Leikskólabörnin mættu og spiluðu fótbolta og ekki var annað að sjá en þau hefðu gaman af.
Allir fengu buff og plakat af landsliði Íslands, bæði karla og kvenna fyrir þátttökuna.

Fleiri myndir má sjá í myndasafni hér á síðunni: