Forstöðumaður íþrótta- og frístundamála Hvalfjarðarsveitar
10. júlí 2026
Helgi Óttarr Hafsteinsson hefur verið ráðin sem forstöðumaður íþrótta- og frístundamála og mun hann hefja störf í ágúst.
Forstöðumaður íþrótta- og frístundamála ber ábyrgð á faglegri forystu og þróun íþrótta- og frístundastarfs Hvalfjarðarsveitar, auk reksturs Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar.
Helgi Óttarr er með M.Sc.-gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði. Hann er jafnframt með M.Sc.-gráðu í markaðs- og alþjóðaviðskiptum og B.Sc.-gráðu í sálfræði. Helgi Óttarr hefur fjölbreytta starfsreynslu, meðal annars á sviði stjórnunar, mannauðsmála, félagsþjónustu, æskulýðsstarfs og þjálfunar.
Hvalfjarðarsveit býður Helga Óttarr velkominn til starfa.