Fara í efni

Forstöðumaður íþrótta- og frístundamála

Hefur þú brennandi áhuga á tómstunda- og íþróttamálum fyrir börn og fullorðna?
Langar þig að taka þátt í rekstri og þróun íþróttamannvirkis?

Hvalfjarðarsveit leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til að stýra íþrótta- og frístundamálum sveitarfélagsins. Við leitum að einstaklingi með reynslu á sviði íþrótta- og félagsmála og góða skipulags- og samskiptahæfni.

Ef þú hefur metnað fyrir öflugu íþrótta- og frístundastarfi og vilt hafa jákvæð áhrif í samfélaginu, þá gætir þú verið rétti einstaklingurinn fyrir okkur.

Starf forstöðumanns íþrótta- og frístundamála heyrir undir deildarstjóra Velferðar- og fræðsludeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð
      • Stýring og daglegur rekstur íþróttamannvirkisins Heiðarborgar, félagsmiðstöðvar, frístundaþjónustu og tómstundastarfs  eldri borgara.
      • Yfirumsjón með skipulagi og samræmingu starfseminnar.
      • Þátttaka í stefnumótun, áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana.
      • Umsjón með upplýsingamiðlun, skráningum og öðrum verkefnum sem tengjast starfseminni.
      • Eftirlit með því að starfsemin uppfylli viðeigandi gæðakröfur samkvæmt lögum, reglum, samþykktum og samningum.
      • Samstarf við íbúa, félagasamtök og aðra hagaðila sveitarfélagsins.
         
        Menntunar- og hæfniskröfur
        • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
        • Stjórnunarreynsla á sviði íþrótta- og tómstundamála er æskileg.
        • Reynsla og þekking á rekstri, stjórnun og stefnumótun er kostur.
        • Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
        • Góð tölvukunnátta.
        • Góð málakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
        • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
        • Hreint sakavottorð.
        • Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.

         Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.ágúst eða fyrr.
        Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
        Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.