Foreldramorgnar á bókasafni
01. september 2026
Foreldramorgnar á bókasafni Akraness verða á miðvikudögum kl. 10:00 - 12:00 og byrja í næstu viku, 2. september.
Foreldramorgnar eru vettvangur fyrir foreldra til að hittast, spjalla saman og eiga gæðastund. Öll hjartanlega velkomin.
Í gildi er samstarfssamningur á milli Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar um rekstur Bókasafns Akraness. Samningurinn felur í sér að Bókasafn Akraness þjónustar einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir í Hvalfjarðarsveit jafnt sem á Akranesi og tryggir íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgengi að safnkosti og þjónustu safnsins.