Fara í efni

Ferstikla 1 L33168 - Aðalskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. ágúst 2025 að auglýsa skipulagslýsingu að breyttu Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 í landi Ferstiklu 1 L133168, til samræmis við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í breytingunni felst að hluta núverandi landbúnaðarlands (L2) og óbyggðs svæðis (ÓB1) verði breytt í skógræktar- og landgræðslusvæði (SL). Áætlað er að 67 ha svæði verði skilgreint sem skógræktar- og landgræðslusvæði.

Kynningartími tillögunnar er frá 4. - 18. september 2025 í Skipulagsgátt.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeild