Fara í efni

Fellsendi L133625 - Vinnslutillaga og kynningarfundur

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 25. júní 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir jörðina Fellsenda, L133625.

Breytingin felst í upplifunarmiðstöð þar sem fornbílasafn er miðpunktur auk annarrar þjónustu, s.s. veitingarreksturs, gistingar og fjölbreyttrar afþreyingar, á um 16 ha svæði. Jafnframt er gert ráð fyrir göngu-, reið og hjólaleið milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Landið er skilgreint sem landbúnaðarland og er innan varúðarsvæðis/þynningarsvæðis stóriðjuveranna á Grundartanga. Framkvæmdin kallar á breytingu á aðalskipulaginu þar sem skilgreint verður nýtt verslunar- og þjónustusvæði og gert ráð fyrir nýrri göngu-, reið og hjólaleið. Samhliða breytingu á aðalskipulagi er unnið deiliskipulag fyrir svæðið og sameiginleg umhverfismatsskýrsla fyrir bæði verkefnin.

Kynningartími tillögunnar er frá 8. júlí – 19. ágúst 2026.

Kynningarfundur um aðalskipulagsbreytinguna verður haldinn í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, þann 10. ágúst nk. og hefst fundurinn kl. 17.

Tillagan er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og er til sýnis og umsagnar í Skipulagsgátt HMS, málsnr. 220/2026, hér

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.