Fellsendi L133625 - Aðal- og deiliskipulagstillaga
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 12. nóvember 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi í landi Fellsenda, L133625, í samræmi 31. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni er kynnt upplifunarmiðstöð þar sem fornbílasafn er miðpunktur auk annarrar þjónustu, s.s. veitingarreksturs, gistingar og fjölbreyttrar afþreyingar á um 16 ha svæði. Jafnframt er gert ráð fyrir göngu-, reið og hjólaleið milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Landið er skilgreint sem landbúnaðarland og er innan varúðarsvæðis/þynningarsvæðis stóriðjuveranna á Grundartanga.
Nánari kynning og gögn má nálgast í Skipulagsgátt, mál nr. 220/2026 og 1312/2026.
Kynningartími tillagnanna er frá 18. nóvember – 30. desember 2026.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild