Fellsendi L133625 - Skipulagslýsing
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 25. febrúar 2026 að auglýsa Skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og nýtt deiliskipulag, á jörðinni Fellsenda, L133625.
Fyrirhugað er setja á stofn fornbílasafn auk annarrar þjónustu, s.s. veitingar og fjölbreytta afþreyingu á rúmlega 19 ha svæði.
Kynningartími tillögunnar er frá 26. febrúar til 20. mars 2026.
Tillagan er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og til sýnis í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, hér.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis og skipulagsdeild