Fara í efni

Félagsstarf aldraðra 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit 2022 - 2023.

Nú er félagsstarf aldraðra, fyrir 60 ára og eldri, í Hvalfjarðarsveit að hefjast.

Opið hús fer fram tvisvar sinnum í mánuði frá september fram í maí í félagsheimilinu Miðgarði á miðvikudögum kl. 14:00 nema annað sé auglýst . 
Umsjón með opnu húsi hafa Sigrún Sólmundardóttir og Ingibjörg Eyja Erlingsdóttir.

Tímasetningar á opnu húsi til áramóta má sjá hér:

Sundleikfimi er í Heiðarborg 1-2 sinnum í viku yfir vetrartímann kl. 10:40 til 11:20. Í boði er hægt að kaupa hádegismat í Heiðarskóla þá daga sem sundleikfimin er.  Það þarf að skrá sig í sundleikfimina á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
Leiðbeinandi verður Hanna Þóra Guðbrandsdóttir.

Dagsetningar á sundleikfimi frá september til áramóta má sjá hér:

Umsjón með félagsstarfi aldraðra hefur frístunda- og menningarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar, Ása Líndal Hinriksdóttir.