Félagsstarf 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit
02. október 2026
Opið hús eldri borgara verður í félagsheimilinu Miðgarði, þriðjudaginn 6. október kl. 12:15.
Aðstoð við gerð og skreytingu haustkransa, efni til skreytinga verður á staðnum.
Hver og einn kemur með sinn krans til að skreyta.
Spil og spjall.
Karlahornið verður á sínum stað.
Léttar veitingar.
Allir 60 ára og eldri eru velkomnir í góða samveru og notalega stemmingu í Miðgarði.