Fara í efni

Félagsmálastjóri í afleysingu

Elín Thelma Róbertsdóttir, félagsráðgjafi, mun leysa félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar, Freyju Þöll Smáradóttur, af næsta árið meðan Freyja Þöll er í barneignarleyfi. Elín Thelma er með áralanga reynslu af störfum við félagsþjónustu sveitarfélaga, nú síðast í Kópavogi.

Hvalfjarðarsveit býður Elínu Thelmu velkomna til starfa.