Fara í efni

Færanleg kennslustofa við leikskólann Skýjaborg

Komið hefur verið fyrir færanlegri kennslustofu við leikskólann Skýjaborg þar sem opnað verður auka leikrými fyrir leikskólann í því skyni að geta tekið á móti fleiri börnum og brúa þannig bilið þar til nýtt leikskólahúsnæði verður tilbúið.
Hönnun nýs leikskólahúsnæðis er á lokastigi og áætlað að byggingu nýs þriggja deilda leikskóla í Melahverfi ljúki árið 2028.

Nýja kennslustofan, sem fengið hefur heitið Sólin, var sett upp 31. mars sl., hún er 64,4m2 að stærð og stendur á lóðamörkum götunnar Innrimels. Áætlað er að kennslustofan standi þar til nýr leikskóli verður tekinn í notkun og er því einungis um tímabundna lausn að ræða.

Aðkoma fyrir bíla að leikskólanum breytist ekki en bílastæðum við hann mun fækka tímabundið. Næg bílastæði er þó að finna í nágrenni leikskólans, s.s. við stjórnsýsluhúsið að Innrimel 3.

Aðkoma gangandi að leikskólanum mun breytast tímabundið fyrir þá sem eru að koma frá Bugðumel en aðilar geta nýtt sér göngustíg milli Lækjarmels 6/8 og 2/4.