Fara í efni

Eru tækifæri í smávirkjunum á Vesturlandi ?

Miðvikudaginn 3. febrúar kl. 09:00 standa Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fyrir opnum Teamsfundi um smávirkjanir á Vesturlandi. 
Athugið að það þarf að skrá sig á fundinn. Skráningu má nálgast hér: Skrá mig á fund

Á fundinum munu þeir Arnar Bergþórsson og Arnar Már Björgvinsson frá fyrirtækinu Arnarlæk kynna skýrslu sem þeir unnu um smávirkjanir á Vesturlandi.  Í skýrslunni er farið yfir frumúttekt á valkostum fyrir smávirkjanir á Vesturland, en alls voru 70 valkostir skoðaðir.  Að auki er í skýrslunni fjallað almennt um ferlið við uppbygginu smávirkjana.

Skýrsluna má nálgst hér: Smávirkjanir á Vesturlandi-frumúttekt valkosta