Pöntun á merktum peysum
Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar þann 1. júní ætlar sveitarfélagið að færa öllum börnum í leik- og grunnskóla sveitarfélagsins hettupeysu með merki Hvalfjarðarsveitar að gjöf. Mátun peysanna hefur farið fram í góðu samstarfi við leik- og grunnskóla sveitarfélagsins.
Vegna mikils áhuga og afar jákvæðra viðbragða býðst íbúum, starfsfólki og öðrum velunnurum sveitarfélagsins einnig að panta sér peysu. Hægt verður að koma í stjórnsýsluhúsið að Innrimel 3 til að máta peysur og/eða ganga frá pöntunum.
Verð á peysu er 5.000 krónur og hægt verður að greiða með millifærslu á staðnum.
Opnunartímar fyrir mátun og pantanir:
Föstudag 8. maí kl. 10:00–12:00
Mánudag 11. maí kl. 10:00–12:00
Ath. Grái liturinn á peysunni verður örlítið dekkri heldur en sést á myndinni en er þó mjög svipaður.
