Frá sveitarstjóra
Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi sl. níu ár að fá að nýta starfskrafta mína í þágu Hvalfjarðarsveitar með öllu því frábæra starfsfólki sem þar starfar að alúð og heilindum. Þessi níu ár hafa verið fljót að líða enda verkefnin næg og fjölbreytt í ört stækkandi sveitarfélagi.
Þegar ég lít yfir farinn veg fyllist ég stolti yfir því að hafa fengið að taka þátt, með öflugu starfsfólki Hvalfjarðarsveitar og kjörnum fulltrúum, í allri þeirri uppbyggingu og íbúafjölgun sem verið hefur. Þar hafa sannarlega allir lagst á eitt með að hlúa að, sinna þjónustu og mikilli innviðauppbyggingu, samfélaginu öllu til heilla.
Ég er auðmjúk og þakklát fyrir traustið og heiðurinn að fá að stýra sveitarfélaginu sl. tvö kjörtímabil eða átta ár sem er 40% af 20 ára líftíma sveitarfélagsins sem fagnar tveggja tuga tímamótum þann 1. júní nk.
Við lok yfirstandandi kjörtímabils lýkur ráðningartíma mínum og hyggst ég þá halda á ný mið en þeirri ákvörðun mun eðlilega fylgja söknuður, bæði til samfélagsins og ekki síður starfsfólksins sem áfram mun standa vaktina með sama sóma og myndarbrag, hér eftir sem hingað til.
Ég óska Hvalfjarðarsveit, íbúum, starfsfólki, kjörnum fulltrúum og öðrum velfarnaðar til allrar og langrar framtíðar. Í Hvalfjarðarsveit eru tækifærin framundan, hvert sem litið er, það er einungis samfélagsins að fanga þau, nýta og láta blómstra, því allir vegir eru færir.
Takk fyrir mig Hvalfjarðarsveit!
Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri.