Fara í efni

Úthlutun úr afreksstyrktarsjóði Hvalfjarðarsveitar

Á fundi Fjölskyldu- og frístundanefndar þann 7. desember 2023 voru teknar fyrir umsóknir í Afreksstyrktarsjóð Hvalfjarðarsveitar en sjóðurinn er ætlaður til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem á lögheimili í Hvalfjarðarsveit og hefur skarað fram úr og/eða fengið viðurkenningu fyrir störf/afrek sín á sviði íþrótta. Úthlutað er 2x á ári úr sjóðnum og þurfa umsóknir að hafa borist fyrir 15. apríl og 15. nóvember ár hvert.

Ein umsókn barst í sjóðinn í seinni úthlutun á þessu ári og fékk Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir úthlutað styrk úr sjóðnum að fjárhæð kr. 150.000.

Guðbjörg Bjartey er hluti af afrekshópi Sundfélags Akranes og stundar nám á afreksbraut í Fjölbrautarskóla Vesturlands. Hún er í A-landsliði Íslands og hefur verið í æfingabúðum og keppnisferðum erlendis á þessu ári.

Guðbjörg Bjartey hefur unnið til fjölda verðlauna á árinu. Hún tók þátt í Taastrup Open í Danmörku með unglingalandsliðinu í vor og vann þar til bronsverðlauna í 50m skriðsundi. Hún var einnig partur af blandaðri boðsundssveit sem vann til bronsverðlauna í 4*100 metra skriðsundi. Íslenska landsliðið varð stigahæst á mótinu og þau tóku bikarinn heim. 

Einnig tók hún þátt í Íslandsmeistaramótinu í 25 metra braut og varð tvöfaldur unglingameistari á því móti, bæði í 50 metra skriðsundi og 50 metra flugsundi. Fékk silfurverðlauna í opnum flokki (fullorðinsflokki) í þessum sundum og í 100 metra skriðsundi varð hún önnur í unglingaflokki og þriðja í fullorðinsflokki.

Guðbjörg Bjartey hefur tryggt sér áframhaldandi sæti í landsliðinu, og náði  í fyrsta sinn inn í A landslið og úrvalshóp. En það tryggði henni þátttökurétt á Norðurlandameistarmóti sem fram fór í Eistlandi nú í desember.

Hún setti þrjú Akranesmet í einstaklingsgreinum á árinu, í 50 metra skriðsundi bæði í unglinaflokki og fullorðinsflokki. Einnig  Akranesmet í unglingaflokki í 100 metra skriðsundi. Öll þessi met voru 20 ára gömul og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir átti þau öll. 

Hún var einnig í boðsundssveitum sem sló fimm Akranesmet á árinu, í 4*50m fjórsundi og 4*100 m fjórsundi og skriðsundi í blandaðri sveit í 50 metra laug og í 4*50m fjórsundi og skriðsundi í blandaðri sveit í 25 metra laug. Boðsundsveitin vann einnig til verðlauna á Íslandsmeistaramótum.